Við aðstoðum fyrirtæki

Starfsfólk Kredit ehf. hefur um langt skeið sérhæft sig í aðstoðum við fyrirtæki sem glíma við rekstrarlegan vanda. Sérfræðingar okkar veita margvíslega aðstoð, má sem dæmi nefna samninga við kröfuhafa, heildarúttekt og viðsnúning í rekstri eða aðstoð við endurfjármögnun óhagstæðra lána. Kynntu þér málið betur með því að hafa samband, við vinnum fyrir þig!

Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

 

Ummæli viðskiptavina

Við höfum nýtt okkur þjónustu Kredit ehf tvívegis. Í fyrra skiptið fengum við aðstoð við samninga gagnvart banka og helstu birgjum okkar. Þeir samningar gengu eftir og fyrir það erum við ævarandi þakklát. Í síðara skiptið fengum við almenna rekstraráðgjöf. Sú ráðgjöf skilaði okkur miklu. Ekki síst í bættri framlegð og ferlum innan fyrirtækisins. Starfsfólkið er ánægðara og sömuleiðis við sem eigendur fyrirtækisins. Þökkum frábæra þjónustu og einstakt viðmót á erfiðum tímum.
Eigendur byggingarfyrirtækis

Eftir að hafa fengið aðstoð við samningagerð gagnvart erlendum birgjum okkar hikum við ekki við að mæla með þjónustu Kredit ehf. við aðra í svipuðum sporum. Viðmót og fumlaus vinnubrögð starfsfólks Kredit eru til fyrirmyndar.
Framkv.stj heildverslunar