Einstaklingar
Af skiljanlegri ástæðu þá birtum við ekki nöfn viðskiptavina okkar enhöfum fengið leyfi frá nokkrum þeirra til að birta eftirfarandi ummæli.
Viðhöfum lengi verið í basli og nýverið skullu á okkur persónulegargjalþrotabeiðnir ásamt uppboði á íbúð okkar. Staðan var í einu orðimjög svört. Við vorum við það að gefast upp þegar að við höfum sambandvið Kredit Aldrei höfum við (skuldararnir) fengið jafn góða ogkarfmikla þjónustu í okkar málum. Okkar mál voru tekin föstum tökumnæstu 3 mánuði. Í dag höfum við endurfjarmagnað allar okkar skuldir oggetum loks gengið upprétt. Við getum mælt með þjónustunni við hvern sem er og bendum nú þegar mörgum á að hafa samband við Kredit
Hjón á fertugsaldri
"Ég er bara ein af þeim sem hef fengið ofnæmi fyrir innheimtustofum oglögfræðingum og alltaf stungið höfðinu í sandinn. En nýverið gerði égmér grein fyrir að þessi afstaða mín gengi ekki lengur. Ég fékk þvíráðgjöf sem leysti bæði vel og örugglega úr mínum málum. Ég er reyndarenn að greiða niður mínar skuldir en fæ ég frið fyrir innheimtumönnum.Ég veit hvað ég þarf að greiða um hver mánaðarmót. Mér líður óneitanlega betur. Takk fyrir frábæra þjónustu
kveðjur af austurlandi
12fjárnám voru komin á fasteignina okkar og framundan var uppboð þar semeinsýnt var að við myndum tapa eigninni. Við leituðum til starfsfólksKredit ehf sem gekk í okkar mál með fítonskrafti. Á síðustu stundunáðist að afturkalla allar uppboðsbeiðnir og við héldum fasteigninni.Nú höfum við endurfjármagnað allr okkar skuldir, greiðum einum aðilaafborganir af fasteignaláni og lífið leikur við okkur. Áður hrukkuinnágreiðslur ekki fyrir vöxtum og kostnaði. Við mælum með þjónustu Kredit við hvern sem er.
38 ára og vinnur í verslun
Éghef verið í vanda með meðlagsgreiðslurnar mínar í mörg ár. Kredit ehfgekk frá samning um þær fyrir mig og nú fyrst hef ég náð að halda þeim í horfinu. Þvílíkur léttir að hafa tekið á mínum málum.
25 ára námsmaður
Éggekk í ábyrgð fyrir lán hjá vinkonu minni og til að gera langa sögustutta þá féll lánið á mig til greiðslu. Ég hef aldrei verið með háartekjur en alltaf komist þolanlega af og geta greitt mínar skuldir. Hérvar hinsvegar um nokkuð háa upphæð að ræða sem ég einfaldlega réðiekkert við. Í nokkur ár hefur þessi skuld verið á eftir mér og hamlaðfyrirgreiðslu í bönkum svo ekki sé minnst á sálarlíf mitt semeinfaldlega fór í graut. Fyrir tilviljun leitaði ég til Kredit ehf semleysti frábærlega úr mínum málum. Þau sömdu um niðurfelingu skulda aðhluta og ég greiddi upp lánið með kjörum sem mér höfðu aldrei verið boðin áður. Ég er laus og sjaldan verið ánægðari. Takk fyrir mig.
42 ára afgreiðslukona
Éghef ekki sinnt því að ljúka framtalsgerð í mörg ár og skulda þvítöluverða skatta. Ég forðaðist allt sem gat verið frá skattinum ogtollstjóra og opnaði ekki póstinn minn um langt skeið. Nú hefur Kreditehf tekið öll mín mál í gegn. Ég skulda reyndar töluverða upphæð en þaðbesta er að ég sé fram úr því að geta klárað mín mál. Að hafa snúið mértil Kredit efh er líklega skynsamasta ákvörðun sem ég hef tekið um langt skeið.
43 ára tæknimaður
Fyrirtæki
"Við leituðum til starfsmanna Kredit ehf í þeim tilgangi að fá aðstoð við nauðasamninga gagnvart lánadrottnum sínum í kjölfar afar erfiðrar skuldastöðu. Með nauðasamningum vildu stjórnendur fyrirtækisins og hluthafar, freista þess að endurreisa fyrirtækið og sýna ábyrgð í rekstri og stjórn. Nauðasamningar eru í eðli sínu afar viðkvæmir gagnvart nálgun, samskiptum og samningum við lánadrottna og því var mikilægt að vandað væri til verka. Séð var um nauðasamninganna í heild af einstakri fagmennsku og leysti sérstaklega vel úr öllum málum. Við gefum starfsfólki Kredit hæstu einkunn fyrir vinnubrögð og fagmennsku."
Stjórnarformaður iðnaðarfyrirtækis
"Við nutum um skeið aðstoðar starfsmanna Kredit ehf við fjárhagslega endurskipulagningu og rekstrarráðgjöf í kjölfar breytinga á rekstri okkar. Við erum afar ánægðir með þjónustuna sem hefur einkennst af framúrskarandi þjónustulund og faglegum vinnubrögðum sem hafa reynst afar árangursrík. Við gefum Kredit ehf og starfsfólki fyrirtækisins okkar allra bestu meðmæli."
Framkvæmdarstjóri þjónustufyrirtækis
"Rekstur okkar var komin á heljarþröm og við áttum ekki margra kosta völ. Annað hvort var að freista þess að ná samningum við okkar birgja eða fara með reksturinn í gjaldþrot. Við tókum þann kost að fara í frjálsa nauðasamninga. Starfsfólk Kredit sá um alla samninga fyrir okkar hönd og stóð sig með prýði. Við náðum samningum við alla okkar lánadrottna og reksturinn gengur með ágætum í dag."
Framleiðslufyrirtæki
"Um langt skeið hafði rekstur fyrirtækisins gengið afskaplega brösuglega. Þegar við leituðum til starfsfólksKredit ehf. var erindið að biðja um aðstoð við að fara fram á gjaldþrotaskipti á fyrirtækinu. Þeir sáu hinsvegarmöguleika á að snúa rekstri fyrirtækisins til betri vegar. Til allrar hamingju tókst það með ágætum. Í dag búum við að blómlegum rekstri og getum fagnað því að hafa ekki þurft að láta ábyrgðir falla á vini og vandamenn."
Iðnaðarfyrirtæki