Okkar viðskiptavinir

Fjölmargir Íslendingar glíma við margvíslegan fjárhagslegan vanda einhvern tíma á lífsleiðinni. Okkar hlutverk og sérhæfing felst í að aðstoða einstaklinga sem eru í fjárhagslegum vanda. Má þar nefna samninga við kröfuhafa, lögmenn og sýslumenn ásamt frágangi á meðlagsskuldum, aðstoð við greiðsluaðlögun og úrlausnir á húsnæðisvanda, svo einhvað sé nefnt.

Sem dæmi um þau störf sem við ynnum af hendi höfum við fengið góðfúsleg leyfi til að birta eftirfarandi dæmi af okkar störfum, þó án þess að nefna nöfn viðkomandi með beinum hætti.

Einstaklingar

Ég hef dregið það um árabil að greiða fjölmargar skuldir sem hafa þó fylgt mér eins og skuggi í gegnum tíðina. Loks leitaði ég til starfsfólks Kredit sem sá um að ná samningum fyrir mína hönd. Mér var gert ljóst í upphafi að samningar kynnu að verða erfiðir og þess vegna kom það mér á óvart að það skuli hafa náðst að semja við alla mína kröfuhafa með þeim hætti að ég get staðið við þá samninga sem gerðir voru. Tilfinningin er frábær og mér líður eins og frjálsum manni á ný eftir langan tíma í viðjum skuldafens. Þakka frábæra þjónustu.

32 ára rafvirki í sjálfstæðum rekstri

Fleiri